Landsbankinn - hefur innheimtuaðgerðir

Í dag 6.janúar 2009 komu greiðsluáskoranir frá Landsbanka íslands vegna vanskila á húsnæðislánum hjá þeim.

Svo að lesendur þekki málið frá A til Ö þá var staðan nákvæmlega svona:

1.veðréttur - 16.800.000 Upphaflegur höfuðstóll - staða í dag ca 22 milljónir

2.veðréttur - 3.600.000 Upphaflegur höfuðstóll - staða í dag ca 5 milljónir.

3.veðréttur - 5.000.000 upphaflegur höfðustóll - staða í dag ca 6,5 milljónir.

3 bréf komu í dag þann 7.janúar.

Bréf 1 dagsett 11.desember. - Greiðsluáskorun vegna láns að upphæð 3,6 milljónir.

Bréf 2 dagsett 17.desember - Greiðsluáskorun vegna sama láns og að ofan en nú með gjaldfelldum höfðustól og dráttarvöxtum sem höfðu safnast upp á 6 dögum að upphæð ( frá 11. til 17.) 391.997.

Innheimtu þóknun bætist svo við þessa upphæð að krónum 153.141 króna.

Hvernig lýst ykkur á það?  Bara ansi vel gert hjá Landsbankanum. 

Fyrir lánið á 1.veðrétti er verið að rukka um 12.5% af skuldinni í Bankakostnað og innheimtuþóknun. samtals um 60 þúsund krónur.

Hvað átti Össu Skarphéðinsson við þegar hann talaði um vægari innheimtuaðgerðir?

Ég er aðeins að fá á tilfinninguna að Landsbankinn ætli að láta okkur finna fyrir því að hafa sagt alþjóð frá því í Kastljósi að við ætluðum að hætta að borga. 

Ég fer í Landsbankann á morgun og fæ þetta á hreint og bæti þá þeirri færslu við - vonandi með hljóðupptöku af samskiptum mínum við lögfræðideild landsbankans.

Það sem er einnig athyglisvert við þetta allt saman er að Landsbankinn segir mig meðskuldara á báðum lánum. Hið rétta er að ég er aðalskuldari með eiginkonu minni á 3,6 milljón króna láninu en skrifaði ekkert á hitt lánið - bara ekki neitt. - Þannig að spurningin er hvort Landsbankinn sé ákveðinn í að bæta mér við það lán líka.

 Hér eru svo greiðsluáskoranirnar.

Eins og sjá má á þeim ákvað Landsbankinn að gjaldfella lánið allt innan þeirra tímamarka sem þeir settu í fyrri Greiðsluáskorun. Það má vel vera að þeir beri fyrir sig að ég hafi tilkynnt þeim að ég vildi að þeir seldu íbúðina á uppboði hið fyrsta.

Við vorum búin að ákveða að vera með aðeins 1 af þessum lánum í vanskilum og láta selja íbúðina á þeim grundvelli til að lágmarka kostnað ef við þyrftum á endanum að skipta um skoðun. Bankinn snýr þessu hinsvegar þannig að með þessari aðgerð margfaldast kostnaðurinn. Svörin koma í ljós á morgun og verður öllu smellt á netið í kjölfarið af því.

2 veðr 11des brefið Bréfið frá 11.des sem kom inn um lúguna 6.janúar.

2 veðr 17des brefid Bréfið frá 17.des sem kom inn um lúguna með hinu 6.janúar

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Getur þú hringt í mig varðandi þetta mál og annað tengt því 862-0095

Sigrún Unnsteinsdóttir (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 23:05

2 Smámynd: Vésteinn Gauti Hauksson

Sæl Sigrún

 Endilega sendu bara á mig e-mail á vgautih@visir.is

 bestu kveðjur

Vésteinn

Vésteinn Gauti Hauksson, 6.1.2009 kl. 23:24

3 identicon

Samþykkir ekki að greiða lánin gjaldfelld ef þú bjargar þessu. Þá reiknast dráttarvextir á allt lánið frá 1. vanskilagjalddaga. Fyrir utan lögfræðiþóknun hækkar verulega. Reyndar held ég að það sé verið að breyta lögunum um innheimtuþóknun.

Guðrún (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 14:34

4 identicon

Þú ert hetja. Þetta held ég að allir eigi að gera. Ég ætla að dreifa þessu efni. Allir þurfa að sjá þetta svart á hvítu. Endilega leyfðu okkur að fylgjast með samskiptum þínum við bankann.

Margrét (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 23:33

5 identicon

Tek mér það bessaleyfi að tengja hingað.

Rósa Halldórs (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 23:38

6 identicon

Þetta er flott, vonandi fáum við að fylgjast með. Það eru mörg hundruð heimila í sömu stöðu og munu fylgja í kjölfarið með aðgerðir, og langflest geta ekki annað.

Toni (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 00:46

7 identicon

ég dáist af því hvað þú ert hugaður að gera þetta.

Við ættum öll að gera það sama og heimta það að verðtrygging sé bönnuð.

Högni (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 01:52

8 identicon

http://eyjan.is/silfuregils/ 

Gjaldeyrisskiptasamningar fyrir útvalda

Það var lokað á gjaldeyrisskiptasamninga í bönkunum mest allt árið 2008?
Aðeins vildarvinir, þ.e. stærstu eigendur í bönkunum gátu gert slíka samninga og gerðu það ásamt stjórnendum í efstu lögum bankakerfisins. Þeir ætluðu ekki út fyrr en í gengisvísitölunni 180-200.
Ekki nóg með að bankarnir væru hættir að þjónusta atvinnulífið, þá var tekin staða gegn krónunni fyrir eigin hag og til að “boosta” upp rekstrar og efnahagsreikninginn, allt á kostnað þegna landsins.
Málið var að mest allt þetta ár voru helstu stjórnendur skíthræddir, vitandi að þeir voru komnir út í horn.
Þessir gjaldeyrisskiptasamningar við stærstu eigendur voru um leið greiði fyrir að selja ekki hlutabréf í bönkunum sem hefði kallað yfir sig öðruvísi hrun og um leið endalokin !
Skoðið aðra stóra eigendur (eignarhaldsfélög) t.d. í Kaupþing, það sama var upp á teningnum hjá stórum hluthöfum.

--- --- ---

Stórt veðmál, ekki gjaldeyrisvarnir

Þú getur hengt þig upp á að í sumar var staðan hjá Kjalar (og raunar Bakkabræðrum/Exista líka) þannig að hlutabréfaeignin þeirra var í hræðilegum mínus og erlenda fjármögnunin í hræðilegum mínus. Annað vegna lækkandi hlutabréfa og hitt vegna því falli á krónunni sem þá var komið fram. Nettó staðan því mjög slæm.

Á þeim tímapunkti var aðeins eitt í stöðunni fyrir þessa menn: Taka verulegt veðmál á móti krónunni, töluvert stærra en samtals staðan í hlutabréfunum, til að reyna að vinna upp tapið. Aðrar leiðir voru einfaldlega ekki í boði, fyrir utan að láta gera sig upp sem hefði verið heiðarlega leiðin. Þori líka að veðja við þig að tryggingar sem þessi félög lögðu fram gegn þessum risa-framvirku samningum hafa verið litlar sem engar og örugglega ekki í samræmi við það sem bankarnir og FME hefðu átt að krefjast. Ástæðan er sú að félögin hefðu einfaldlega ekki átt til nauðsynlegar tryggingar (það er skoðunarvert út af fyrir sig).

Þetta á EKKERT skylt við gjaldeyrisvarnir. Það er vitaskuld fínt að nota það orð í dag yfir þetta, en það er augljóst að slíkt tal er fyrirsláttur. Þetta heitir að taka stórt veðmál, til að reyna að redda sínum risa-vandamálum, og þar sem þau þurftu að vera eins stór og raun bar vitni, “steikti” þetta jú krónuna

Þórður B. Sigurðsson (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 01:59

9 identicon

Blessaður

Alveg dáist ég að þér og fylgist svo sannarlega með framhaldinu. Þetta er náttúrlega bara þjófnaður allt heila klabbið.

Það verður fróðlegt að sjá "landslagið" á skuldamarkaðinum eftir svona ár eða hitt þó heldur.

Gangi þér vel og vertu óragur - það standa margir á bak við þig þó við höfum ekki enn fundið kjarkinn til að fara sömu leið. Vonandi breytist það fljótt.

Ég ætla að leyfa mér að senda linkinn þinn á alla mína vini og biðja þá um að senda áfram.

Baráttukveðjur til ykkar hjóna!

ÞA

ÞA (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 06:13

10 identicon

Flott hjá þér að berjast við kerfið ef að svo má að orði komast.  Gaman verður að fylgjast með hvað Landsbankinn ætlar að gera við allar þær eignir sem að hann mun fá á næstu mánuðum.  Sem jú að hann á ekki möguleika á að selja.  En segðu mér eitt hvað gerist ef að húsnæði þitt fer á uppboð mátt þú þá bjóða í það? 

En allavega hlakka til að fá að fylgjast með hvernig þessir menn bregðast við þegar að þú talar við þá.

Siggi Andri (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 07:43

11 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Samt er Landsbankinn með innri innheimtu.

Þakka fyrrir, að það sé ekki stofa úti í bæ, sem innheimtir fyrir þá.

Hef heyrt skelfilegar sögur af slíku t.d. frá Hafnafirði.

Með baráttukveðjum og von um, að almenningur segi sínu fólki í þeim stjórnmálaflokkum, sem þeir tilheyra, að nú sé akkurat tíminn til að afnema annað hvort, Verðtryggingu Fjárskuldbindinga eða setu þeirra á Alþingi.

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 8.1.2009 kl. 08:35

12 Smámynd: Héðinn Björnsson

Gangi þér vel! Þú verður að láta vita ef þig vanntar einhverja aðstoð!

Héðinn Björnsson, 8.1.2009 kl. 09:05

13 identicon

Mér finnst þetta vera rugl hjá þér og ekki meiri greiðslur en þú gast vænst þegar þú keyptir íbúðina

Bjarni (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 10:10

14 identicon

Ég vil þakka öllum fyrir stuðninginn,líka Bjarna númer 14.

Þegar ég ákvað að kíkja á kommentin þá hugsaði ég með mér að það hlyti allavega að vera einn sem þætti þetta algjört rugl.

Við getum ekki verið öll sammála en það er það sem gerir lífið svo skemmtilegt.

Vésteinn Gauti Hauksson (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 10:26

15 identicon

Einar minn.

 Ef þú býrð á íslandi þá er líka verið að svindla á þér -

 Þetta endar allt útí verðlaginu á öllu sem þú kaupir. Þetta er heljarstór spírall sem ekkert fær stoppað nema afnám verðtryggingar.

Vésteinn Gauti (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 11:06

16 identicon

Takk fyrir þetta ... þ.e.a.s. að leggja þínar skuldir á mínar herðar.  Núna þarf ég bara að borga meira... og við hin öll.  Það er eitt að berjast fyrir rétti og réttindum, annað að láta það bitna á öðrum saklausum greiðendum þessa lands. 

Ef þú þarft frekari útskýringar þá þýðir það að þú farir í þrot að eignin þín verður seld hæstbjóðanda og líklega verður bankinn fyrir miklu tapi.  Það tap færist á viðskiptavini bankans og þar sem ég er í viðskiptum við Landsbankann (með verðtryggt lán, stend í skilum, þótt ósáttur sé) ... verð ég að borga þetta fyrir þig.

Verði þér að góðu!

Freyr (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 11:08

17 identicon

Freyr það vita allir sem það vilja vita að þú þarft ekki að borga eitt né neitt frekar en þú vilt!  Þetta er þreytt bábilja lífeyrissjóðs-teyminga sem ættu bara að skammast sín.  Merkilegt að þú minnist ekki á ranglæti þess að við sem erum með íbúðarlán séum að borga fyrir geturleysi ríkisstjórnarinnar og bankanna sem tóku stöðu gegn okkur! 

Til hamingju Vésteinn eftir einn gjaldaga í viðbót fer mitt lán í þrot! 

Beta (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 11:29

18 Smámynd: Hvíti Riddarinn

Þetta er það allra vitlausasta sem ég hef séð lengi. Það er ekki ein tala rétt reiknuð í þessu dæmi 

1.veðréttur - 16.800.000 Upphaflegur höfuðstóll - staða í dag ca 22 milljónir

Fyrir lánið á 1.veðrétti er verið að rukka um 12.5% af skuldinni í Bankakostnað og innheimtuþóknun. samtals um 60 þúsund krónur.

12,5% af 22 milljónum um 60 þús ekki skrýtið að þú komist að þeirri niðurstöðu í þínum útreikningum að þetta borgi sig.

 Takk fyrir að leyfa okkur hinum að borga með þér því við sem stöndum í skilum greiðum fyrir þessa vitleysu þína á endanum

Hvíti Riddarinn, 8.1.2009 kl. 12:04

19 identicon

Beta... núnú... á ég bara að hætta að borga af húsinu mínu og láta taka það af mér?  "Bábilja lífeyrissjóðs-teyminga", ertu í lagi?

Við erum að borga fyrir það sem við kusum að kaupa og tókum lán fyrir frá bönkum sem við ákváðum að skipta við.  Þú verður að bera ábyrgð á þínum eigin gerðum, hvort sem illa árar eða vel.  Ég á ekki að borga fyrir þig, né Véstein. 

Einar... ekki gleyma að taka inn verðbólgu þess lands sem þú býrð í.  Verðtryggingin er ekki bara þarna til að vera þarna.  Hvað kemurðu til með að eiga í lífeyrissjóð þegar þú kemst á aldur?  Hvað eiga Íslendingar í sjóðum ef þess þarf með?! Meira en þitt evruland!  Hvað hefur húsnæðisverð fallið mikið í evrulandinu þínu?  Íslendingum er fullkomlega heimilt að nota evrur ef þeir vilja... spurningin er bara hvort við erum nægilega vitlaus til að ganga í Evrópusambandið.

Freyr (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 12:20

20 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Vésteinn... þú ert töffari! Gangi þér vel í baráttunni !

Heiða B. Heiðars, 8.1.2009 kl. 12:23

21 identicon

Tölum frekar saman þegar þú ætlar að gera tilkall til þessara 3200 evra... hver ætlar að borga þær?

Þýðir svo lítið að taka einhvern hjall í Grindavík sem dæmi... ég er bara að bera saman þróun fasteignaverðs hér og t.d. í Kaupmannahöfn.  Þar hafa menn horft á yfir 50% lækkun á fasteignaverði undanfarið og eru ekki að sjá það stöðvast þar.  Held að við séum nú bara ágætlega sett.

Svo segir þú að þetta sé tímabundið ... já það er nákvæmlega það sem þetta er ... líka hér!

Freyr (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 12:57

22 identicon

Nú ert þú að vinna hjá fyrirtæki sem veitir fólki fjármálaráðgjöf (http://spara.is/Employee). Eruð þið virkilega að ráðleggja fólki út í bæ þessi vitleysu? Er ekki nær að þú borgir þær skuldir sem þú steyptir þér sjálfur í, eins og við hin gerum? Þú hefðir getað keypt þér minna húsnæði, sleppt því að flytja eða bara leigt.

Þú hlýtur að sjá það að ef þú borgar ekki lendir skuld þín á einhverjum öðrum í staðinn, að öllum líkindum á bönkunum/ríkinu og þar af leiðandi þjóðinni. Þakka þér fyrir það.

Annað: Hvernig í ósköpunum færðu það út að þú fáir meira upp í skuldir þínar með því að láta setja íbúðina á nauðungarsölu í stað þess að selja hana sjálfur á markaði núna?

Töffari (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 13:10

23 identicon

Til þess að geta lánað peninga þá þarf lánastofnun að fá lánaða peninga annarsstaðar. Ef menn borga ekki sín lán þá þarf annaðhvort að rukka allra aðra meira eða fara á hausinn.

En þú ert svo vel efnaður að þú ættir kannski bara að lána Vésteini persónulega og þá geturðu auðveldlega leyft honum að borga þér þá vexti sem þú kýst þætti gaman að sjá á hvaða kjörum þú ert til í að lána.

Albert (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 13:25

24 identicon

Mér leiðast tölur en finnst þetta flott hjá þér.  Vona að þetta blási fleiri Íslendingum kjark í brjóst til að snúa baki við neyslufylleríinu og græðginni endanlega og fara að hlúa að því sem raunverulega skiptir máli.  Stattu keikur!

kveðja,

ein skuldlaus

urður (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 13:34

25 identicon

Einar: Albert svaraði þessu ágætlega í #28.

Banki býr ekki til peninga. Hann fjármagnar sig, t.d. hjá Seðlabanka Íslands, og lánar svo til einstaklinga og fyrirtækja. Ef þessir aðilar borga ekki, lendir bankinn í að geta ekki borgað sínar skuldbindingar, svo það lendir bara á ríkinu (okkur öllum) á endanum.

Það eyðileggur fyrir okkur hinum sem stöndum í skilum, því ríkið neyðist þá til að skera niður þjónustu, hækka skatta o.s.frv.

Þess vegna finnst mér þetta vera vitleysa hjá Vésteini, því hann kom sér sjálfur í þetta klandur.

Töffari (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 13:38

26 identicon

Einar:  Gott að þú ert búinn að sjá ókostina við ESB.  En hvað væri gert í þínu evrulandi ef þú borgaðir ekki af húsinu þínu?

Urður: Þú getur auðvitað hvatt Véstein áfram, enda þarft þú líklega ekki að borga skuldirnar hans.

Albert:  Ef þetta væri svona einfalt, þá væri Landsbankinn farinn á hausinn og allir væru glaðir... en svoleiðis gerist bara í ævintýrum.  Einhver verður á endanum að borga... og það verða þeir sem borga af lánunum sínum.  Ekki Vésteinn.  Finnst þér það líklegt að ég færi að lána slíkum óreglumanni?

Freyr (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 13:42

27 identicon

Freyr: spurningin var til Einars en ekki þín enda ert þú ekki að hallmæla vaxtakjörum á Íslandi eins og Einar gerir.

Einar: Vésteinn fór í greiðslumat við lántöku eins og allir aðrir íslendingar hann var með milljón á mánuði í laun og gat vel borgað af sínu láni. Hann er ennþá með mjög góð laun á spara.is og getur alveg borgað sín lán en vill fífla sauðheimskan almúgan með lygaútreikningum. Erlendar húsnæðislána stofanir eru í sömu vandræðum og þær íslensku líka í evrulandi.

Verðtryggingin bjargar gamlingjum þessa lands en ekki bönkunum það er sorglegur misskilningur. 

Albert (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 13:51

28 identicon

Fyrirgefðu Albert, misskildi, en punkturinn er valid ;)

Það er að mínu mati krafa þeirra sem byggðu þetta land að verðtryggingin haldi sér svo lífeyrir þeirra verði ekki skertur.  Hvað svo á að gera við fjárlgæframenn er allt annar hlutur og efni í aðra umræðu.  

Einar: Flest okkar sem borgum af lánum okkar erum bara venjulegt fólk með venjulegar tekjur.  Það er enginn ánægður með þetta ástand.  Það er samt glæfralegt að styðja glæpamenn eins og Véstein í að skaða bankakerfið.  Það er óverjandi.  Talandi um óstjórn og fjárglæframenn!

Freyr (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 13:58

29 Smámynd: Óskar Helgi Helgason

Heill og sæll; Vésteinn Gauti, líka sem aðrir þeir, hverjum plagast, til skrifa og innlits, hér hjá þér !

Enginn; enginn, skyldi elta ólar við, né anza kvabbi Landsbankans, á hendur skuldurum þeim, við hvern þann gamla (LÍ) hófust.

Þessi banka fjandi; átti, auk hinna tveggja, stóran þátt, í hruni atvinnulífs, sem mannlífs, á landi hér.

Eiga því; engar réttmætar kröfur, á hendur fyrri skuldara.

Með baráttukveðjum, góðum, úr Árnesþingi, spjallvinur góður /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason, 8.1.2009 kl. 14:32

30 identicon

Verðtryggingin sjálf er ágæt. Það er hins vegar verðbólgan sem er óþolandi og þar getur þú kennt peningamálastefnu SÍ, hækkun hámarkslána ÍLS, auknu aðgengi að lánsfé o.s.frv. um.

Staðreyndin er sú að afar fáir myndu lána í verðbólgulandi eins og Íslandi, ef ekki væri fyrir verðtryggingin. Við værum sennilega að borga svona 15-20% vexti óverðtryggt til 25 ára að öðrum kosti giska ég á. Það er heldur ekki spennandi. Og hverjir eru að lána okkur? Jú það eru t.d. lífeyrissjóðirnir á hinum endanum. Við viljum ekki að fé þeirra brenni og við sitjum í vondum málum í ellinni. Þess vegna er kerfið ekkert svo galið. Það mætti alveg vel ræða það að ÍLS færi í útboð á óverðtryggðum pappírum til að fjármagna óverðtryggð lán.

Bölvið heldur verðbólgunni, heldur en verðtryggingu lána.

Töffari (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 14:35

31 identicon

Vésteinn þú ert hetja.

Ég horfi ekki á söguna, hvort þú tókst of stórt lán sem þú gætir ekki staðið undir, endurfjármagnaðir og fórst í utanlandsferð, félst fyrir múgæsingnum í kringum 90-100% lánin eða varst algjörlega með allt á hreinu  og nógan "greiðslubuffer" er aukaatriði að mínu mati.

Ég ber virðingu fyrir fólki eins og þér sem hefur þor og þrautsegju að standa upp í hárinu á "kerfinu" og vinna að réttlæti, sama hvar óréttlæti er að finna. Það þarf ekki að vera ráðherra eða forseti til að breyta heiminum, það þarf ekki að drepa eða eyðileggja heldur.

Ef VIÐ ÖLL erum með augu og huga opin, horfum til heildarinnar og gerum okkar, sama hversu lítið það er, þá breytum við lífinu til hins betra, fyrir alla. Losum okkur við hjarðhegðun og fjötra misvísandi frétta sem og orðaslag um ónýtar uppfinningar mannsins í formi stjórnmálaflokka, ESB og úreld gildi. 

Gangi þér vel ...
Jónas

Jónas (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 14:38

32 identicon

Hvernig í fjáranum sér fólk þetta sem hetjuskap og að standa í hárinu á einhverjum?

1. Vésteinn verður settur í gjaldþrot

2. Bankinn selur eign hæstbjóðanda (líklega sjálfum sér) eignina og rukkar Véstein um rest.

3. Vésteinn getur ekki borgað (öllu heldur ætlar sér ekki).

4. Bankinn verður fyrir skaða

5. Bankinn hækkar gjöld/vexti/o.s.frv. til að standa undir skuldbindingum

6. Almenningur borgar.

Glæsilegt plan Vésteinn ... og þið hin sem kallið hann hetju!   Þetta er með öðrum orðum engu siðlegra en vitleysingurinn sem bauð fólki að setja sig í gjaldþrot í Kompási um daginn.  Og svo vinnur maðurinn hjá Spara.is sem er að bjóðast til að aðstoða fólk um hvar á að spara... t.d. með því að leggja inn á banka.  Hvað haldið þið að gerist fyrir innlánsvextina þegar menn eins og Vésteinn hætta að standa í skilum.  Hefur yfirmaður Vésteins spurt sig um þá þversögn?

Funi (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 15:03

33 identicon

Hver ber ábyrgð á verðbólgunni það eru verslunarmenn svo ég legg til að Vésteinn fari líka og steli úr búðum og neiti að borga þar því þar er fyrst óréttlætið og ástæðan fyrir verðbólgunni + fasteignasalar.

Andrés (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 15:16

34 identicon

Ég ætla að svara nokkrum ádeilupunktum hérna í réttri röð.

#18 Freyr

Vonandi leiðir þetta til einhvers góðs Freyr. Ég er að fara að leggja í mikinn kostnað við að fara í mál við Landsbankann og vonandi verður þú sáttur að lokum.  Þar að auki þá hef ég ávallt sagt að ég ætlaði að greiða umframskuldirnar.

#21 Hvíti riddarinn:

60.000 krónurnar eru tilkomnar af því að höfuðstólinn hefur ekki verið gjaldfelldur  - þetta eru 12.5% af vanskilunum.

Aðrar tölur eru réttar og ef þú getur sýnt fram á að bankinn reikni þetta rangt út þá er það frábært. 

#22 Freyr

Samkvæmt lögum #7 frá 1936 með síðari breytingum ( sjá nýjustu bloggfærslu mína) frá 1995 í samræmi við EES samninginn hefur skapast ójafnræði á milli samningsaðila. Landsbankinn hefur verið á síðasta ári að taka stöðu gegn krónunni og valdið þannig verðbólgu á íslandi - þannig að þetta er ekki eitthvað sem ég gat reiknað inn í dæmið á sínum tíma. og þú ekki heldur og þú mátt alveg vera brjálaður - ef þú myndir standa með mér í stað á móti þá gæti okkur tekist að gera kerfið í þessu landi þannig að við þyrftum ekki að vera að standa í svona stappi.

#26 Freyr nei ég meina Töffari

1.lagi þá er ég ekki í ráðgjöf fyrir spara.is heldur markaðsstjóri eins og stendur á heimasíðunni

2. lagi þá er spara.is ekki að ráðleggja fólki að gera þetta enda eru fáir sem vilja fara þessa leið. Við hjálpum fólki við að fara þá leið sem þeim líður vel með að fara. Ráðleggjum því hvernig hægt er að bæta heimilisreksturinn og margt fleirra.

3. Ef þú getur fengið leyfi hjá Landsbankanum til að selja íbúðina undir veðsetningarmörkum þá væri ágætt að þú myndir senda það á mig.  En það sem meira er þá eru slíkar tilraunir í gangi því við munum þá koma með tilboðið til Landsbankans og láta á það reyna. Nauðungarsala er er eina leiðin til að stoppa ferlið. það er eina leiðin til að íbúðin seljist örugglega. En svo hef ég ávallt sagtað ég ætlaði að greiða umframskuldirnar þannig að þú þarft ekki að hafa áhyggjur Freyr - leyfðu bara Landsbankanum að halda áfram að þjösnast á þér.

#28 Albert

Fyrst þú veist þetta þá veistu líka að inni í vaxtatölunni sem þú ert að greiða er gert ráð fyrir afföllum af útlánum. þannig að ef nokkrir hætta ekki að borga er bankinn að græða meira. Þú græðir ekkert á því. En ég ítreka að ég hef ávallt sagtst ætla að greiða afganginn.

30# Töffari

Minni þig á fall krónunnar - hvernig það er tilkomið og hvernig í ósköpunum ég gat haft á það einhver áhrif?

#31 Freyr

Freyr þú getur ekki bæði sagt að Urður þurfi ekkert að borga og segja svo í næstu línu fyrir ofan að hún borgi í gengum ríkið eins og allir aðrir. Hvort er það Freyr?

#34 Albert

Vilt þú ekki bara hringja í mig og útskýra afhverju þetta eru lygaútreikningar? þú veist hvar ég vinn og þér er velkomið að hringja á vinnutíma.

#36 Freyr

 Kannski best að þú hringir í mig´og útskýrir hvernig ég er glæpamaður þegar ég hef lýst því yfir að ég ætli að borga afganginn. Skil það ekki alveg.

Vésteinn Gauti (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 15:18

35 identicon

#41 Funi

Þú ert mjög illa upplýstur um málið og ættir að kynna þér málavexti áður en þú byrjar að belgja þig.

En afhverju þorir enginn sem kallar mig glæpamann og ýmislegt þaðan af verra að setja fullt nafn? Skrítið.

#42 Andrés

Vá -

Vésteinn Gauti (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 15:24

36 identicon

Það er einmitt ástæðan fyrir því að ég segi bölvið heldur verðbólgu, en verðtryggingu. Það vill enginn lána óverðtryggt í verðbólguheimi, nema þá á svimandi vöxtum. Sá sem lánar (t.d. lífeyrissjóðirnir okkar) vill ekki brenna peningana sína. Þess vegna erum við með verðtryggingu. Ef þið eruð ósátt við háa verðbólgu - sem við öll erum - þá ættum við heldur að pirra okkur á peningamálastefnunni.

Töffari (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 15:29

37 identicon

Flott hjá Vésteini, hann er búin að læra af útrásarvíkingum og ætlar að láta almenning borga skuldirnar sínar.

Bjöggi (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 15:30

38 identicon

#43 Þú gerir t.d. ráð fyrir því að verðbólgan næsta kastið verði 17% það er ekki rétt því hún var 17% á síðasta ári og skv. spá t.d seðlabanka og IMF þá verður hún ekki nema á bilinu 5-10% sem breytir töluvert forsendum sem kynntar voru í kastljósi.

Albert Ásvaldsson (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 15:34

39 identicon

Já en þessi gögn eru söguleg og segja ekkert til um framtíðina. Nú er atvinnuleysi og allir eru að lækka í launum þ.a.l. ætti ekki að vera aukinn þrýstingur á verðbólgu. Gengi krónu var líka 120 fyrir ári síðan en er 250 núna það þýðir hvorki að það verði 700 eftir ár eða 100 eftir ár það bara veit enginn um það en líklega verður ársverðbólga eftir ár ekki yfir 10% sama hvað þetta graf segir 

Albert (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 16:19

40 identicon

ég gæti líka sett sambærilega mynd af hlutabréfamarkaði t.d þetta

http://m5.is/?gluggi=visitala&visitala=13&timabil=1825

og ef þú horfir á hæstu tölu 2007 þá myndi ég halda að hún væri sambærileg við töluna sem þú ert að sýna 

Albert (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 16:22

41 identicon

#51 Albert

Málið er kæri Albert að seðlabankinn hefur ekki staðið sig vel í að spá fyrir um verðbólgu - og bankarnir ekki heldur. Þeir vinna eftir likani sem segir ávallt að verðbólga verði komin svo og svo langt niður eftir 12 mánuði - en þetta er reiknilíkar sem gerir ráð fyrir að aðgerðir takist - sýnist þér aðgerðir vera að takast?  Ég hef enga trú á að þær takist  - því miður. En takk fyrir málefnalega umræðu Albert.

Vésteinn Gauti (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 17:20

42 Smámynd: Theódór Norðkvist

Nokkrir hér fullyrða að ef stór hópur hætti að borga af lánum sínum eða komist í greiðsluþrot muni aðrir lántakendur og skattgreiðendur borga fyrir þá í hærri vöxtum eða sköttum.

Mig langar að spyrja þá hina sömu hvað þeir hafa fyrir sér í þessu. Fyrirtæki og einstaklingar eru keyrðir í gjaldþrot í tugatali í viku hverri. Þannig hefur það lengi verið, eini munurinn er að gjaldþrotum hefur fjölgað og mun fjölga enn meir eftir hrunið.

Er þá hægt að segja með sömu rökum að vextir séu hærri vegna allra þessara gjaldþrota síðustu ára? Hafa þeir sem halda þessu fram einhverjar tölur eða rannsóknir því til stuðnings? Ef gjaldþrot síðasta árs hefðu verið 50% færri hvað væru vextir mikið lægri? Einu prósentustigi, tveimur, fjórum? Ég spyr.

Við erum líka að tala um að fólk er að komast í þá stöðu að geta ekki greitt af lánum sínum, ekki að fólk vilji það ekki. Þegar vaxtakostnaður og afborganir lána er kominn upp í 40-50% af útgjöldum heimila þá er þetta bara einfaldlega dæmi sem gengur ekki upp.

Theódór Norðkvist, 9.1.2009 kl. 11:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vésteinn Gauti Hauksson

Höfundur

Vésteinn Gauti Hauksson
Vésteinn Gauti Hauksson

Vill breyta tveim hlutum á íslandi hið snarasta -

Afnema verðtrygginguna af lánum strax og gera öllum kleift að stunda Háskólanám - burtséð frá því hvort foreldrar eiga íbúð eða ekki.

Feb. 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28            

Nýjustu myndir

  • scari2
  • Björn Ingi - skari
  • IMF
  • IMF
  • 2 veðr 17des brefid

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.2.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 17110

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband