Konan hlýtur að vera að grínast....... ekki aukin skattbyrði ---

Nú er Jóhanna endanlega búinn að ljúga sjálfa sig fulla.

 Hvernig dettur henni í hug að segja þetta?

Hún ætlar að hækka skatta á hvern og einn en samt ekki þannig að skattheimta verði meiri en hlutfallsleg skattheimta af vergri landsframleiðslu 2005-2007.

Það eru færri að borga skatta = hærri tala á hvern mann.

Er hægt að skilja þetta á einhvern annan máta?

Ég fyllist ótta yfir þessari vitleysu og hvernig grímulaust er logið að fólki. Orð notuð sem eru þannig úr garði gjörð að nánast ógjörningur er að leggja skilning í hvaða vitleysu er verið að segja.

Spurningin er bara hvort að ég er að skilja konuna rétt.

 

 


mbl.is Kynna skattahækkun eftir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sagan endurtekur sig - gömul lög frá 1972 - svipa til nýrra gjaldeyrishafta.

Kannast einhver við tóninn í þessum lögum?

 Þá voru gjaldeyrishöft mikil, krónan féll hratt og ríkisstjórnin þurfti að hafa puttana í öllu heila klabbinu.

2. gr,

Þá er skilað er til banka gjaldeyrir fyrir útfluttar sjávarafurðir framleiddar fyrir 1.janúar 1973, skal hann greiddur útflytjanda á gamla genginu. Ríkisstjórnin kveður nánar á um, til hvaða afurða þetta ákvæði skuli taka, og eru ákvarðandir hennar þar að lútandi fullnaðarúskurðir.

ER EKKI NÓG KOMIÐ AF ÞESSARI ANDSKOTANS KRÓNU?


Loksins - Þjóðin fær að ráða og enginn gefur frá sér sín mál

Þó að ég óttist að þessi ríkisstjórn muni ekki gera neitt fyrir heimilan þá er þó eitt sem ég er strax ánægður með.....

 Þau hafa ákveðið að svíkja ekki sína kjósendur með því að "semja" um málamiðlunarleið í Evrópumálum.

Húrra fyrir þessum tveimur flokkum - lýðræðið virðist vera virkt ( þó aðeins í þessu eina tilfelli)

 


mbl.is Ætla að treysta á andstöðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undanfarnir mánuðir hafa verið ævintýrum líkastir –

Björn Ingi - skari  A.K.A scari2

Lion King - Ævintýrið

Í stuttu máli. Góður konungur stýrir ríkinu af miklum myndarskap. Sonur hans, Simbi, á að taka við konungdæminu fljótlega. En bróðir konungsins er ekki alveg sáttur við þessa málavexti. Hann ræður konunginn af dögum og ætlar að drepa Simba litla líka en Simba tekst að flýja til fjarlægra staða þar sem hann er öruggur á meðan hann verður fullvaxta og tilbúinn í slaginn. Skari – vondi bróðirinn tekur völdin með fulltingi 3 hýena. Simbi kemur svo aftur og tekur völdin og allt verður gott á ný.

Reykjavíkurborg – Raunveruleikinn.

Í stuttu máli. Villi Vill ( Konungurinn) stjórnar borginni.  Birni Inga (Skari) líkar það ekki vel. En bræðralag þeirra um að stjórna borginni hékk einmitt eingöngu á því að Birni Inga líkaði vel. Gísli Marteinn ( Simbi) er líklegur til að taka við með tíð og tíma. Björn Ingi ræður Villa Vill af pólitískum dögum með REI málinu og kemst undan því á furðulegan máta með fulltingi Svandísar, Dags. B. Eggertssonar og Margétar Sverrisdóttur ( Hýenurnar 3). Sjálfstæðisflokkurinn tekur svo aftur völdin en Simbi er ennþá í útlöndum að styrkja sig fyrir komandi átök.

FLEIRRI SÖNN ÆVINTÝRI Á LEIÐINNI.......

 


mbl.is Aldrei heyrt alvarlegri ásakanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

20% niðurfærsluleiðin - að frádreginni umfram innistæðutryggingu.

20% niðurfærsluleiðin er nauðsynlegt ef við ætlum okkur að koma þjóðfélaginu af stað.

Þannig eignast fólk aftur smá hlut í íbúðinni sinni sem hafði verið tekin af þeim með "eignatilfærslu" sem var allt í senn óeðlileg, óréttlát og ólögleg þó svo að við getum ekki sannað það síðasta vegna flækjustiga í útreikningum.

En við höfum nú þegar gefið öllum sem áttu fé inni á banka hverja krónu umfram 20 þús evra trygginguna.

Þannig má segja að mín hugmynd snúist um þetta dæmi.

Guðrún á 9 milljónir í banka. Hún skuldar 30 milljónir í bankanum eftir að verðtrygging hækkaði óeðlilega.

miðað við 150 krónur pr evru þá hefði hún aðeins átt að eiga 3 milljónir eftir við fall bankann. Mjög sorglegt en lögin segja að það sé því miður svoleiðis. Því voru sett neyðarlög þar sem Geir H. Haarde gaf hverja krónu sem fólk átti umfram inni á bankabókinni. Þjóðin gaf þessa peninga.

Hún Guðrún fékk því 6 milljónir gefins.

Nú á að leiðrétta lánin hjá öllum. En svo vill til að Guðrún skuldar 30 milljónir og á því að fá 6 milljónir leiðréttar. En hún hefur þegar fengið þær vegna innistæðutrygginga og því eru lánin hennar ekki leiðrétt. Hún á ekki að fá tvöfalt.

Annað hvort skilja stjórnmálamenn ekki hugmyndina eða þeir vilja bara ekki að það sé jafnræði á meðal manna á íslandi.


Á hvaða verði selur Frjálsi sér íbúðirnar?

Nú er stóra spurningin á hvaða verði Frjálsi fjárfestingabankinn selur sjálfum sér þessar íbúðir.

Ég minni á að kröfuhafi verður að láta allt fé sem kemur umfram nauðungarsöluverð renna til skuldarans við sölu.

Þetta þýðir að ef:  t.d Jón Jónsson skuldar 20 milljónir og FF kaupir íbúð hans á 3 milljónir á uppboði að JJ skuldar bankanum 17 milljónir. Bankinn síðan selur íbúðin aftur á 5 milljónir. Þá þarf bankinn að draga auka 2 milljónir frá skuld JJ. Því ætti JJ að skulda bankanum 15 milljónir.

Undir eðlilegum kringumstæðum myndi slík íbúð seljast á ca 15 -20 milljónir hafi hún verið full veðsett.

En nú eru ekki eðlilegar kringumstæður.

Mig grunar að FF selji sjálfum sér íbúðirnar á svipuðu verði og þeir keyptu þær á. Þannig geta þeir rukkað skuldarann um allar eftirstöðvarnar og látið svo íbúðina borga sjálfa sig upp Í ÚTLEIGU.

Ef þetta er raunin þarf einhver röggsamur Alþingismaður og þá helst Jóhanna Sigurðardóttir að beita sér fyrir því strax að slík meðhöndlun á fólki verði stöðvuð strax.

 

 


mbl.is Banki í fasteignaviðskiptum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er best að allir hætti að borga tímabundið?

Eftir fund okkar í HH með Gylfa viðskiptaráðherra um daginn og svo þessa frétt þá er mig farið að gruna eftirfarandi:

Nýju bankarnir eru að reyna að koma einhveru verðmati á lánin sem þeir hafa yfirtekið.

Gömlu bankarnir vilja fá eins mikið og hægt er en vita að nýju bankarnir mega ekki fæðast andvana.

Erlendu lánin eru öll fryst í augnablikinu og því í skilum - annars væru þau í óskilum og þar af leiðandi nánast verðlaus -  Því er verið að leggja kapp á að halda áfram að frysta.

( ég skil reyndar ekki hvaða aðrir hagsmunir liggja að baki aðrir en að koma í veg fyrir uppþot, en það þýðir alls ekki að slíkir hagsmunir séu ekki til - því ég veit alls ekki allt frekar en aðrir)

Lang stærsti hluti verðtryggðu lánanna er í góðum skilum og fagna menn í stjórnekerfinu því.

þá er komið að vangaveltunni:

Ef allir hætta að borga núna - verða þá lánin metin á lægra verði til gömlu bankanna og þá geta stjórnmálamenn rætt við kröfuhafana um lægri endurgreiðslur og verið með í höndunum sannanir fyrir því að bréfin séu í raun slæm en ekki góð - værum við þá að fá meiri afskriftir fyrir Ísland útá við.

Því ef við borgum og borgum þá er ekki hægt að færa sönnur fyrir því að bréfin séu verðlítil. Afhverju ætti þá einhver erlendur aðili að samþykkja frekari niðurfellingu.

Bara pæling.....


mbl.is Býst við vaxtalækkun í næstu viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt fólk á þing, hvað þýðir það?

Smá hugrenning um nýja frambjóðendur til Alþingis.

Þjóðin er ekki að biðja nýtt fólk um að koma - það er að biðja um aðra tegund af fólki. Fólk sem situr ekki á pöllunum og hlustar á sérfræðinga tala eitthvað um sem það skilur ekki.

 Við viljum fá:

Nýtt fólk inn sem tekur málin í sínar hendur og framkvæmir óskir þjóðarinnar.

Nýtt fólk sem er tilbúið til að handtaka Baldur Guðlaugsson fyrir innherjasvik.

Nýtt fólk sem er tilbúið til að handtaka þá starfsmenn bankanna sem gerðust brotlegir.

Nýtt fólk sem er tilbúið til að breyta lögum þannig að þeirra eigin hagsmunir skaðist jafnvel.

Nýtt fólk sem þorir, vill og gerir.

Nýtt fólk sem krefst þess að verðtryggingin veðri afnumin strax en láti ekki þjóðina þjást svo að flokkurinn þeirra geti fengið að fara með þjóðina inn í Evrópusambandið.

Nýtt fólk sem þorir að ræða Evrópuaðild og taka svo ákvörðun.

Nýtt fólk sem er tilbúið til að beygja sig undir lýðræðið.

Nýtt fólk sem á ekki pabba, frænda eða frænku sem er í glæpaklíkunni sem eyðilagði landið.

 


Íslandsbanki með góða hluti í bígerð varðandi gengistryggð lán.

Fyrr í dag var ég sem stjórnarmaður Hagsmunasamtaka Heimilanna á fundi í Íslandsbanka ásamt Þórði varaformanni og Ólafi Garðarssyni stjórnarmanni.

Þar voru kynntar fyrir okkur tvær aðgerðir sem Íslandsbanki er að undirbúa fyrir skuldara gengistryggðra lána( erlendra lána) hjá bankanum.

Það er greinilega að Íslandsbankafólk með Birnu Einarsdóttur í broddi fylkingar eru að leggja sig fram um að gera góða hluti fyrir viðskiptavini sína.

Fyrri lausnin:

virkar þannig að í stað þess að greiðslubyrði hækki og lækki þá hreinlega lengjast þau og styttast eftir því hvort gengið styrkist eða veikist. Einskonar teygjulán.

Greiðslubyrðin af þessum lánum mun þá miðast við þá greiðslubyrði sem var af lánum 1.maí 2008.

Greiðslubyrðin mun svo þróast í samræmi við greiðslujöfnunarvísitöluna sem hefur verið boðið uppá fyrir lántakendur verðtryggðra lána.

Með þessari aðferð mun greiðslubyrði þessara lána lækka töluvert og því leysir þessi aðferð bráðavanda fjölmargra heimila og fyrirtækja.

Glæsilegt skref sem lausn á bráðavanda og ber að fagna því

Seinni lausnin:

Í seinni lausninni felst að ÍB ( íslandsbanki) býr til skuggalán frá þeim degi sem erlenda lánið var tekið. Þetta skuggalán reiknast eins og ef lántakandi hefði tekið verðtryggt lán í upphafi. En þegar tekið er tillit til þess að flestir hafa verið að greiða af erlendum lánum sínum sem jafn-afborganalánum þá kemur fljótlega í ljós að þessi lán munu taka miklu minni verðbætur á sig en sambærilegt lán sem hefur verið greitt af á venjubundin máta.

Síðan á að fylgjast með gengi krónunnar og þegar höfuðstóll skuggalánsins og gengistryggða lánsins mætast er láninu snarað í krónur og við höfum fengið þá niðurstöðu sem Hagsmunasamtök heimilanna hafa verið að biðja upp.

Vil ég því biðja fólk um að standa upp frá tölvunni sinni og klappa fyrir íslandsbanka.

Una Steinsdóttir og Haukur Skúlason kynntu fyrir okkur þessar frábæru tillögur og verða þau að fá prik fyrir vel unnin störf.

Þó er að sjálfsögðu ekki búið að leiðrétta marga hluti og eru þetta aðeins tvö góð skref í rétta átt.

 Því enn er eftir að styrkja gengið, fella niðru verðtryggingu og ýmislegt annað. En þetta fólk er greinilega að vinna góða vinnu innan þess ramma sem það mögulega getur og fagna ég þessum tillögum heilshugar og vona að allir geti tileinkað sér þessar aðgerðir.

Þess ber þó að geta að því miður fá þeir sem eru í mesta vandanum ekki lausn sinna mála, en það eru þeir sem hafa komist í greiðsluerfiðleika.

Því er enn og aftur verið að sleppa því að aðstoða þá sem mest þurfa á því að halda.

En lofa ber hvert gott skref.


Margföldum atkvæðisrétt okkar!

Með því að ganga í alla flokka má margfalda atkvæðisrétt sinn.

Skoðum dæmi:

Í meðal prófkjöri taka þátt um 3000 manns ( oft mikið minna og stundum soldið meira).

Í alþingiskoningum taka ca 150.000 manns þátt.....

Því hefur atkvæði mitt 50 sinnum meira vægi í prófkjöri en í alþingiskosningum..........

 Ég hef því skráð mig í alla flokka ( kannski líkar þeim það ekki en mér er alveg sama) og ég ætla að kjósa fólkið sem ég vil að komist á þing í hverjum flokk......

 Gerð þú slíkt hið sama og við getum í sameiningu slegið á flokksræðið.

Lengi lifi byltingin.


Næsta síða »

Um bloggið

Vésteinn Gauti Hauksson

Höfundur

Vésteinn Gauti Hauksson
Vésteinn Gauti Hauksson

Vill breyta tveim hlutum á íslandi hið snarasta -

Afnema verðtrygginguna af lánum strax og gera öllum kleift að stunda Háskólanám - burtséð frá því hvort foreldrar eiga íbúð eða ekki.

Feb. 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28            

Nýjustu myndir

  • scari2
  • Björn Ingi - skari
  • IMF
  • IMF
  • 2 veðr 17des brefid

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.2.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 17110

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband